Notendaskilmálar korta
Skilmálar vefverslunar Snæfellsbæjar.
Velkomin í vefverslun sem er í eigu og rekstri Snæfellsbæ, kt. 510694-2449, Klettsbúð 4, Snæfellsbæ.
Hér eftir verður notast við „við“, „okkur“ og „okkar“ þegar átt er við sveitarfélagið Snæfellsbær.
Vinsamlegast lestu skilmálana vandlega áður en þú verslar í vefverslun okkar. Með því að nota vefverslunina samþykkir þú eftirfarandi skilmála.
- SKILGREININGAR
Eftirtalin hugtök hafa þessa merkingu þar sem þau koma fyrir í skilmálum þessum:
- Fullorðinn eru einstaklingar sem eru 18 ára og eldri.
- Skiptakort eru kort með inneign á ákveðinn fjölda eininga.
- Kortin veita aðgang að sorpmóttökustöðvum Snæfellsbæjar.
- Kortin eru sjálfsafgreiðslukort.
- NOTENDAREGLUR
- Skiptakort:
- Hægt er að kaupa skiptakort með inneign á ákveðnu magni rúmmetra af sorpi. Eitt skipti eru 0,25 rúmmetrar.
- Fleiri en einn einstaklingur getur notað skiptakort.
- GJALDSKRÁ
Snæfellsbær gefur árlega út gjaldskrá fyrir stofnanir sveitarfélagsins. Gjaldskrá hvers árs er aðgengileg á heimasíðu Snæfellsbæjar, www.snb.is/ og á viðkomandi starfsstöðum.
- SKILAREGLUR
Skiptakortum er ekki hægt að skila né eru endurgreidd.
- VANEFNDIR, LOKUN KORTA
Ef korthafi gerist brotlegur við notendareglur samkvæmt skilmálum þessum hefur Snæfellsbær heimild til að afturkalla og loka korti fyrirvaralaust.
- GREIÐSLUVANDAMÁL
Ef vandamál vegna greiðslu koma upp eftir á vegna greiðslu (t.d. vákort) áskiljum við okkur rétt til að hafna greiðslunni og hætta við pöntunina.
- MISNOTKUN Á KORTUM
Verði einstaklingur uppvís að því að framvísa/nota í leyfisleysi skiptakort sem skráð er á annan einstakling hefur Snæfellsbær heimild til þess að loka viðkomandi korti.
- PERSÓNUUPPLÝSINGAR
Við virðum friðhelgi þína og meðhöndlum persónuupplýsingar í samræmi við lög nr. 77/200 um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga. Þegar verslað er í vefverslun þarf að gefa upp nafn, heimilisfang og netfang. Þessar upplýsingar eru eingöngu nýttar til að ganga frá pöntun, en kaupsaga er vistuð áfram á öruggu svæði sem er læst. Athugið að kortanúmer eru aldrei geymd á vefsvæðum okkar og einungis er hægt að sjá tegund greiðslu, ef fletta þarf upp pöntun. Við deilum aldrei persónuupplýsingum með þriðja aðila.